Гуру Песен Популярное
А Б В Г Д Е Ж З И К Л М Н О П Р С Т У Ф Х Ц Ч Ш Э Ю Я
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z

Birgitta Haukdal - Meðal andanna (the Söngvakeppni Sjónvarpsins 2013) (the ESC 2013-Iceland) | Текст песни

Einmana mig rekur
Myrkrið svart, hin kalda nótt
Frostið hefur myndað rós á gluggann
Ótal augu fylgja mér, er ei rótt

Meðal andanna, sál á röngum stað
Myrkrið hefur tekið öll mín völd
Meðal andanna, fangi hugsana
Eigin vanmáttur stendur vörð

Hjartað berst, mér stjórnað
Hringiða, slæmra hugsana
Þungur andardrátturinn mér heldur
Innst ég vona að brátt það kvikni ljós

Meðal andanna, sál á röngum stað
Myrkrið hefur tekið öll mín völd
Meðal andanna, fangi hugsana
Eigin vanmáttur

Þó stjórni mér hugsanir ég vil berjast
Hlekkina losa og reyni að verjast
Hugsunum mínum og snúa aftur heim

Meðal stjarnanna, finn ég leiðina
Eru þetta sporin mín heim

Meðal stjarnanna, fann ég leiðina
Út úr þokunni fer eigin leið
Meðal stjarnanna, fann ég leiðina
Þetta er leiðin mín heim
Ég er komin heim)


Другие названия этого текста
  • Birgitta Haukdal - Meðal Andanna (0)
  • Birgitta Haukdal - Meðal andanna (the Söngvakeppni Sjónvarpsins 2013) (the ESC 2013-Iceland) (0)
Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1
Популярное сейчас
Видео
Нет видео
-