Ég laga bindið og virði eigin spegilmynd fyrir mér, raka af mér mjólkurskegg Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á? Faðir kenndi mér að handleika byssur en morðhuginn fékk ég í móðurlegg Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindimönnum á? Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta... Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju , sýnið mér faðmana Fælið þið beinagrindur úr skápnum svo ég verði ey andvaka Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Ég var alinn upp af úlfum og fólkið var visst um að ég væri vangefið flón Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á? Dagar og nætur fara einungis í setja saman lygar og hræðileg ljóð Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindimönnum á? Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta... Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana Fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Tíminn er eins og vatnið sagði Steinn... Ég er að drukkna Frá fyrsta degi horft á heiminn í gegnum brotinn glugga Á tíunda afmælisdaginn lét ég fræ falla til jarðar Þann tuttugasta var risið tré, af einni grein hékk snara Röddin í mér er ekki hærri en í manninum mér við hlið Sögurnar mínar eru ekki betri. Hrafnarsparkið sem að ég rita Munurinn felst í því að veröldin veitir honum yl Á meðan að ég get bara öskrað mér til hita
Ég get ekki lifað á ystu nöf, leigan þar er alltof dýr fyrir mann einsog mig Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á? Heimili mitt er við barinn og vinirnir mínir verðir sem kasta mér á dyr Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindimönnum á? Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta... Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana Fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Draumurinn er að verða svo frægur að fólk sem að ég þekki ekki, baknagi mig Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á? Raunin er sú að sannleikurinn hljómar í flestum tilvikum ósannfærandi Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á? Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta... Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana Fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka