Гуру Песен Популярное
А Б В Г Д Е Ж З И К Л М Н О П Р С Т У Ф Х Ц Ч Ш Э Ю Я
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z

Bróðir Svartúlfs - Gullfalleg útgáfa af forljótum náunga | Текст песни

Hvernig get ég annað en glott?
það er stelpan sem að kyssir mig og áfengið sem fyllir mig og allt það sem að hjálparr við að myrða mig en er bara svo gott litlir sólageislar sem að hafa bölæði á brott.
Svo hvernig get ég annað en glott?
það er einveran að nóttu til með blekinu og bókinni, þar sem ég æli af öllu afli því sem fyllir póetískt kok
snotur orðin sem að hafa mig ítrekað á loft.
Svo hvernig get ég annað en glott?
Það eru óslítanleg handaböndin, ótvíræðu hlátrasköllin. vandamenn og vandamálamenn með misóhreint pokahorn
moðerfokkerar sem með mér fremja blóðug tímamorð
Svo hvernig get ég annað en glott?
Svo hvernig get ég annað en glott?
Svo hvernig get ég annað en glott?... Ég get það engan veginn.

Mér þykir prýðilegt að gera mér glaðan dag, daglega
sama hvað hnýsin hornaugun hafa segja um mig
ég er minn eigin herra, ég er mín eigin frú
núið er minn leikvöllur og ég er konungur í sandkastala.
ykkur er öllum boðið á dansleik þar í kvöld.
munið dresscode-ið: verið nakin..
Ég er gullfalleg útgáfa af forljótum náunga
mín takmörk eru heimskuleg og skila mér alls engu
nema einskis nýtri hamingju sem hefur ekki neitt nema persónulegt gildi
En ég er mettur,
gagnslaus í risastórum heimi,
en ég er mettur,
betur settur dauður en á lífi,
en ég er mettur
utanvelta væskill sem vill ekki hlusta á alvöruna þegar að hún tekur til máls,
en ég er mettur
og þessvegna get ég ómögulega þurrkað glottið burt, það er komið til að vera á mínu smetti.

Þakka þér kærlega fyrir að gefa mér augað,
þar sem þú fullorðin sast en ég er orðinn svo fullur,
stígandi vangadans við drauga
flýjandi áfanga sem nú blasir við eins og dauðann
en augnaráð þitt laug ey.
og raunin er sú að raunin er sjaldnast auðgleymd.
Ég vaknaði næsta morgun, heyrnalaus, mállaus og blindur allsnakinn
áttaði mig á því að áttavitarnir mínir þeir voru falsanir
það er allt farið fjandans til, ég sit eftir einn og örvingla
get ekki hangið neinstaðar, það er búið að skera á snöruna..
mér hefur aldrei fundist ég vera eins lifandi á æfinni
það hljómar vel að segja þetta. en þessi tilfinning hræðir mig
ég gretti mig því hvert andartak er sem terta á leið í smettið mitt.
Hver týmir að bjóða mér drykk sem fellir, drykk sem gæti drepið mig?
Á leikvellinum eru ekki lengur opnir armar
og skrímslið inní skápnum sagði bless
í speglinum er gaur sem er vonandi einhver annar
stend ég hér eða handan þessa glers?

Svo hvernig get ég annað en glott?
það er stelpan sem að kyssir mig
og áfengið sem fyllir mig
og allt það sem að hjálpar við að myrða mig en er bara svo gott
litlir sólageislar sem að hafa bölæði á brott
Svo hvernig get ég annað en glott?
það er einveran að nóttu til með blekinu og bókinni,
þar sem ég æli af öllu afli því sem fyllir póetískt kok
snotur orðin sem að hafa mig ýtrekað á loft
Svo hvernig get ég annað en glott?
Svo hvernig get ég annað en glott?
Svo hvernig get ég annað en glott?

Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1
Видео
Нет видео
-