Krummi svaf í kletta gjá, - kaldri vetrar nóttu á, verður margt að meini; verður margt að meini; fyrr en dagur fagur rann freðið nefið dregur hann undan stórum steini. undan stórum steini.
Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor, svengd er metti mína; svengd er metti mína; ef að húsum heim ég fer, heimafrakkur bannar mér seppi´ úr sorpi´ að tína. seppi´ úr sorpi´ að tína.
Öll er þakin ísi jörð, ekki séð á holta börð fleygir fuglar geta; fleygir fuglar geta; en þó leiti út um mó, auða hvergi lítur tó; hvað á hrafn að éta? hvað á hrafn að éta?
Sálaður á síðu lá sauður feitur garði hjá, fyrrum frár á velli. fyrrum frár á velli. 'Krúnk, krúnk! nafnar, komið hér! krúnk, krúnk! því oss búin er krás á köldu svelli. krás á köldu svelli.’