Leyfðu mér að elska þig heitt
Leyfðu mér að skynja gleði þína
Leyfðu mér að finna hjartað
Slá í takt við hjarta þitt
Ef ég gæti sorg þinni breytt
Ef ég mætti láta ljós mitt skína
Myndi ég þér vísa veginn
Bjóða þér í skjólið mitt
Sá sem lætur hjartað ráða för
Veit ekki neitt hvert hann ratar
Því hann lætur hugann far’ á sveim
Sá sem lætur hjartað ráða för
Veit ekki neitt hvert hann ætlar
Og hann getur aldrei ratað heim
Vertu þar sem vonin mín er
Vertu einsog hjartans hlýi kraftur
Vertu einsog eldurinn sem
Alltaf er í minni sál
Leyfðu mér að sofna hjá þér
Leyfðu mér að opna augun aftur
Leyfðu mér að opinbera
Öll mín fögru leyndarmál
Sá sem lætur hjartað ráða för
Veit ekki neitt hvert hann ratar
Því hann lætur hugann far’ á sveim
Sá sem lætur hjartað ráða för
Veit ekki neitt hvert hann ætlar
Og hann getur aldrei ratað heim
Sá sem lætur hjartað ráða för
Veit ekki neitt hvert hann ætlar
Og hann getur aldrei ratað heim
Edda Viðarsdóttir еще тексты
Оценка текста
Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1