Ég les í lófa þínum, leyndarmálið góða Ég sé það nú, ég veit og skil Það er svo ótalmargt sem ætla ég að bjóða Já, betra líf, með ást og yl
Í lófa þínum les ég það Að lífið geti kennt mér að Ég fæ aldrei nóg Ég vil fara frjáls með þér Og fljúga yfir land og sjó
Það er svo augljóst nú að allir draumar rætast Við höldum tvö, um höf og lönd Um lífið leikum við og lófar okkar mætast Þá leiðumst við Já, hönd í hönd
Í lófa þínum les ég það Að lífið geti kennt mér að Ég fæ aldrei nóg Ég vil fara frjáls með þér Og fljúga yfir land og sjó
Ég ætla að fara alla leið Með ást á móti sorg og neyð Ég fæ aldrei nóg Ég vil fara frjáls með þér Og fljúga yfir land og sjó