Það dimmir og hljóðnar í Davíðsborg, í dvala sig strætin þagga. Í bæn hlýtur svölun brotleg sál frá brunni himneskra dagga. Öll jörðin er sveipuð jólasnjó og jatan er ungbarns vagga.
Og stjarna skín gegnum skýjahjúp með skærum lýsandi bjarma. Og inn í fjárhúsið birtan berst og barnið réttir út arma, en móðirin, sælasti svanni heims hún sefur með bros um hvarma.
Og hjarðmaður birtist, um húsið allt ber höfga reykelsisangan. Í huga flytur hann himni þökk og hjalar við reifarstrangann. Svo gerir hann krossmark, krýpur fram og kyssir barnið á vangann.