Birtu bregður jörðin hljóð Bíður nóttin þolinmóð Eftir mér, bíður eftir mér. En það dafnar ljós í dimmunni sem dansar um og faðmar mig Tíminn frýs og staðnar allt um stund.
Á ný, er eins og þú sért aftur hér, á ný. Og svo á ný, er allt eins og það áður var, á ný. Og ég kveð þig, kveð þig svo á ný.
Vaki´á meðan jörðin mín Værum svefni sefur í Vaki´og bíð, ein ég vaki´og bíð. Og það brestur lágt í nóttinni Og bærist ljós í dimmunni Tíminn frýs og staðnar allt um stund.
Á ný, er eins og þú sért aftur hér, á ný. Og svo á ný, er allt eins og það áður var, á ný.
Og ég kveð þig svo á ný, en ég sé þig svo á ný En ég kveð þig, kveð þig. Oooh
Og ég kveð þig svo á ný, en ég sé þig svo á ný En ég kveð þig, kveð þig. Oooh
Á ný, er eins og þú sért aftur hér, á ný. Og svo á ný, er allt eins og það áður var, á ný.