Гуру Песен Популярное
А Б В Г Д Е Ж З И К Л М Н О П Р С Т У Ф Х Ц Ч Ш Э Ю Я
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z

Eyþór Ingi & Hera Björk - Tíðhnit [The Rocky Horror Show] (live) | Текст песни

Agndofa sé ég elfi tímans venda
æði er óhemju fórn
En takið vel eftir -
það tekur brátt enda
í tíma er ég við stjórn

Mér býr í minni er tókum við tíðhnit
teyguðum sekúndu í senn
er svartnættið sviptist
og ómælið æpti

Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn.

Eitt vakurt vinstra hopp
og vel til hægri snú
Hafið hendur á mjöðm
og hnén saman nú.
En gerið hnykkinn á grind
þá geggjast bæði karlar og konur og menn

Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn.

Ég svíf í draumi - í hugarflugsflaumi
flýg ég í laumi - hátt og snjallt
Í ómælisvíddum - ligg á veraldargluggum
volg undir uggum sé ég allt
Með því að taka einn hugarkipp
ferðu yfir á tímaflipp
fílar allar aldir í senn
verður skakkur af skynjun
eins og liggirðu í lyfjum

Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn.

Ég var á gangi hér á götu
er í gúmmítúttum þaut
og skítseyðisgæi
gaf mér skaðræðisflaut
Mér brá við blókastíl
bjóst við jeppagæjaskríl
en sá seiðandi augu
á sendiferðabil
Hann leit á mig - ég lifna enn
logandi var tíminn - og enn ég brenn

Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn.

http://vk.com/eythor_ingi

Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1
Популярное сейчас
Видео
Нет видео
-