Ó helga nótt, þín stjarna blikar blíða, Þá barnið Jesús fæddist hér á jörð. Í dauða myrkrum daprar þjóðir stríða, uns Drottinn birtist sinni barna hjörð. Nú glæstar vonir gleðja hrjáar þjóðir því Guðlegt ljós af háum himni skín. Föllum á kné. nú fagna himins englar, Frá barnsins jötu blessun streymir, blítt og hljótt til þín. Ó helga nótt, ó heilaga nótt.
Vort trúar ljós, það veginn okkur vísi, hjá vöggu Hans við stöndum hræð og klökk Og kyrrlát stjarna kvöldsins öllum lýsi, er koma vilja hér í bæn og þökk. Nú konungurinn Kristur Drottinn fæddist hann kallar oss í bróður bæn til sín. Föllum á kné, nú fagna himins englar, hjá lágum stalli lífsins kyndill, ljóma, fagurt skín. Ó helga nótt, Ó heilaga nótt.