Þjóðsagan um Sæmund fróða eundursögn (Легенда о Саймунде Мудром)
Áður en Háskóli Íslands var stofnaður á síðustu öld fóru Íslendingar til útlanda til að mennta sig. Fyrir framan Háskóla Íslands er höggmynd eftir Ásmund Sveinsson. Efni hennar er sótt í þjóðsögu. Í þjóðsögunni er sagt frá skóla úti í heimi til forna sem hét Svartiskóli (sumir segja að það sé Sorbonne-háskóli í París). Þar lærðu menn galdra og kölski sjálfur var skólameistari. Þrír Íslendingar, sem hétu Kálfur, Hálfdan og Sæmundur, voru þar við nám. Þegar þeir höfðu lokið námi var prestakallið Oddi á Rangárvöllum laust og vildu þeir allir verða prestar þar. Kóngurinn sagði að sá sem yrði fljótastur til Íslands yrði prestur í Odda. Sæmundur kallaði þá á kölska og sagði: „Syntu nú með mig til Íslands og ef þú kemur mér þar á land án þess að ég blotni máttu eiga mig.“ Kölski samþykkti þetta, breytti sér í sel og fór með Sæmund á bakinu til Íslands. Á leiðinni las Sæmundur í sálmabók. Þegar þeir komu að landi á Íslandi sló Sæmundur sálmabókinni í hausinn á selnum svo hann sökk. Sæmundur fór í kaf og synti til lands. Þannig losnaði hann við kölska og fékk prestakallið. Sæmundur fróði Sigfússon (1056–1133) var prestur í Odda á Rangárvöllum. Ein af byggingunum á háskólasvæðinu heitir Oddi.