Hvað ætlar þú að verða væni? voða ertu orðin stór, allir spyrja einum rómi, eilíft hljómar þessi kór. Almáttugur en sú mæða ég get ekki svarað því ferðalangur, fuglahræða flibbanaut í sumarfrí.
\"Ertu ekki með öllum mjalla\" æpir Lóa frænka, læknir eða listaskáld með yfirgreiddan skalla, stærðfræðingur, stórkaupmaður, margt er hægt að bralla. Við bisnessmanni brosir framtíð björt á Íslandi.
Á skrifstofu hann pabbi vinnur skömmin er svo líkur mér. Í yfirvinnu, næturvinnu (16 tímar) er hann bara í huga mér.
Í blóðbankanum mamma vinnur á kvöldin er hún oft svo þreytt. Þegar ég er orðinn stór þá ætla ég ekki að gera neitt.