Ólafur reið með björgum fram, villir hann, stillir hann hitti'hann fyrir sér álfarann, þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
Þar kom út ein álfamær, villir hann, stillir hann sú var ekki kristni kær. þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
"Velkominn Ólafur Liljurós! villir hann, stillir hann Gakk í björg og bú með oss". þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
"Ekki vil ég með álfum búa, villir hann, stillir hann heldur vil ég á Krist minn trúa". þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
Hún gekk sig til arkar, villir hann, stillir hann tók upp saxið snarpa. þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
Saxinu hún stakk í síðu, villir hann, stillir hann Ólafi nokkuð svíður. þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
Ólafur leit sitt hjartablóð villir hann, stillir hann líða niður við hestsins hóf. þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
Ei leið nema stundir þrjár, villir hann, stillir hann Ólafur var sem bleikur nár. þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.
Vendi ég mínu kvæði í kross villir hann, stillir hann sankti María sé með oss. þar rauður logi brann. Blíðan lagði byrinn undan björgunum, blíðan lagði byrinn undan björgunum fram.