Гуру Песен Популярное
А Б В Г Д Е Ж З И К Л М Н О П Р С Т У Ф Х Ц Ч Ш Э Ю Я
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z

Islandica - Kvöldsigling | Текст песни

Bátur líður út um Eyjasund,
Enn er vor um haf og land.
Syngur blærinn einn um aftanstund,
Aldan niðar blítt við sand.

Ævintýrin eigum ég og þú,
Ólgar blóð og vaknar þrá.
Fuglar hátt á syllum byggja bú.
Bjartar nætur vaka allir þá.

Hvað er betra en vera ungur og ör,
Eiga vonir og æskufjör,
Geta sungið, lifað, leikið sér,
Létt í spori hvar sem er,
Og við öldunið um aftanstund
Eiga leyndarmál og ástarfund.

Bátur líður út um Eyjasund,
Enn er vor um haf og land.
Syngur blærinn einn um aftanstund,
Aldan niðar blítt við sand.

Ævintýrin eigum ég og þú,
Ólgar blóð og vaknar þrá.
Fuglar hátt á syllum byggja bú.
Bjartar nætur vaka allir þá.

Hvað er betra en vera ungur og ör,
Eiga vonir og æskufjör,
Geta sungið, lifað, leikið sér,
Létt í spori hvar sem er,
Og við öldunið um aftanstund
Eiga leyndarmál og ástarfund.


Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1
Видео
Нет видео
-