Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, rennur sól á bak við Arnarfell. Hér á reiki' er margur óhreinn andinn úr því fer að skyggja á jökulsvell. :,:Drottinn leiði drösulinn minn, drjúgur verður síðasti áfanginn.:,:
Þei þei, þei þei. Þaut í holti tófa, þurran vill hún blóði væta góm, eða líka einhver var að hóa undarlega digrum karlaróm. :,:Útilegumenn í Ódáðahraun eru kannski' að smala fé á laun.:,:
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, rökkrið er að síga' á Herðubreið. Álfadrotting er að beisla gandinn, ekki' er gott að verða' á hennar leið. :,:Vænsta klárinn vildi' ég gefa til að vera kominn ofan í Kiðagil