Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg. Við skulum tjalda í grænum berjamó. Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær: Lindin þar niðar og birkihríslan grær.
Leikur í ljósum, lokkum og angandi rósum. Leikur í ljósum, lokkum hinn vaggandi blær.
Daggperlur glitra, um dalinn færist ró. Draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg. Kveldrauðu skini á krækilyngið slær. Kyrrðin er friðandi mild og angurvær.