Гуру Песен Популярное
А Б В Г Д Е Ж З И К Л М Н О П Р С Т У Ф Х Ц Ч Ш Э Ю Я
# A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z

Margrét Eir - Í næturhúmi (Moonlight Shadow)(Mike Oldfield cover) | Текст песни

Hún sá hann aldrei aftur
eftir að hann hvarf í næturhúmið.
Hann var þjakaður og þjáður
þegar hann hvarf út í næturhúmið.
Þeir fundu hann loksins í læknum í gær,
í lundi þar sem hvönnin grær.
Úr andlitinu lýsi örvænting tær,
það var engin leið lengur heim.
Það var þýður þytur í trjánum
þegar að hann hvarf út í næturhúmið.
Eins og kramið hjarta og falið
kvæði sín ljóð út í næturhúmið.
Agndofa heyrði hún annarleg hljóð,
óttaslegin hún grafkyrr stóð.
Meðan máninn í skýjunum marvaðann tróð
og martröðin dundi á þeim.

Ég bið og bið
að við hittumst aftur við himins hlið.
Ég bið og bið
að við hittumst og fáum þá loks frið.
Ekkert var eins og áður
eftir að hann hvarf í næturhúmið.
Ég fann þig kveðja með kossi
og hverfa á braut inn í næturhúmið.
Stjarnan á ? loga skær
við lundinn þar sem hvönnin grær.
Og við sáumst þar á ný í gær,
þá var engin leið lengur heim.
Ég bið og bið
að við hittumst aftur við himins hlið.
Ég bið og bið
að við hittumst og fáum þá loks frið.


Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1
Видео
Нет видео
-