Þeir kölluðu mig klett en dropinn holar stein nú sit ég einn á gangstétt og man ei leiðina heim tóbak og tjútt stytta þá leið sú á er bæði djúp og breið sú á er bæði djúp og breið
úr holdi er ég kominn og mold skal verða löngu aðframkominn ónýtt til viðgerða tóbak og tjútt stytta þá leið sú á er bæði djúp og breið sú á er bæði djúp og breið
ég á mér draum - bara ef þú spyrð um að menn einsog ég renni ekki úr á byrgð
gítarsóló:
eins og jarðskjálfti sem bítur allt tapaði öllu sem ég átti sjálfum mér þúsundfalt tóbak og tjútt stytta þá leið sú á er bæði djúp og breið sú á er bæði djúp og breið
ég á mér draum - bara ef þú spyrð um að menn einsog ég renni ekki úr á byrgð
hjálpaðu mér - þar sem ég stend það æðsta er - alltaf - samkennd