Ég hef farið víða um veröld
og villst um ólgandi höf
storkað koldimmri kólgu
og kropið við opna gröf
Ég dvaldi með góðum gestum
og gekk um snauður og einn
Var kóngur í skarlatsskikkju
og skólaus förusveinn
Ég tæmdi skínandi skálar
og skuggaleg drykkjuhorn
var kysstur af kónungsdóttur
og kvalinn af galdranorn
Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1