Sveitin mín sæla með snæþakin fjöll
mildar mitt skap og mýkir sem mjöll
Um aldur og ævi, þú alið hefur mann
af ást og alúð í einlægð þér ann
Hvert fótspor ég feta á fallegri nótt
mitt kvæði sem kafald það kæfir mig rótt
Gegnum hóla og hæðir ég hugsa til þín
með von og vilja þá verður þú mín
Ég er hetjan þín, ég er hetjan þín
mín von ei veit hvað byrgir þér sýn
Með vori kom værðin við vinnu þig sá
þín auðmjúku augu undurfögur og blá
Með hausti kom hryggðin og hatur á mann
með von og vilja þá valdir þú hann
Ég er hetjan þín, ég er hetjan þín
mín von ei veit hvað byrgir þér sýn
Ég mikið þér ann en þú vilt ei minn mann
með von og vilja þá valdir þú hann
Árstíðir (Arstidir) еще тексты
Оценка текста
Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1