Sjái' eg stjarnanna sæg glita bláhimins geim, yfir grænskóg í náttdaggar þey, ó, hve langar mig þá upp í alsælu heim á hins eilífa kærleikans ey.
Því við sólnanna dans, uppi' í himninum hátt, giftir hana mér eilífðin löng, sem hér niðri við jörð eg hef aldregi átt nema í elskunnar draumum og söng.