Þú ert farin en ég er hér, skuggi sem að líkist þér Er hér alla daga, hverja nótt Blómin fölnuð, löngu lið, enginn til að tala við Ég heyri í þér, samt er allt svo hljótt
Ef ég hefði vængi, kæmi ég til þín Ef ég hefði vængi, flygi ég í myrkrinu til þín Ég skýjamúrinn klíf, til að eiga með þér líf
Í garði mínum, rotin beð, enginn til að syngja með Minningin um þig er allt mitt ljós Augun eins og stjörnur tvær, gleðin lýkt og lindin tær Andlitið sem nýútsprungin rós
Ef ég hefði vængi, kæmi ég til þín Ef ég hefði vængi, flygi ég í myrkrinu til þín Ég skýjamúrinn klíf, til að eiga með þér líf
Allt hið góða er í þér, allt það sem þú vildir mér Eins verið hefði í gær, draumurinn sem hjartað grær En þokast aðeins nær og nær