Lítil á sem fjöllin sker alltaf ókunnug var mér eins og orð sem aldrei sagðir þú mér frá Mörg þú áttir leyndarmál sem ég aldrei fékk að sjá líkt og regnbogi sem sífellt flýr mér frá
Og mig langar til að segja sem var aldrei sagt þögnin hefur lífið okkar undirlagt Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð Segðu mér það muni lægja einhvern dag
Aldrei liti áttum við sem gátu málað himininn en þessa hluti aldrei sagði ég við þig En skugga tvo við áttum þó sem málað gátu dag og nótt Ég á enn ósunginn söng til þín frá mér
En mig langar til að segja sem var aldrei sagt þögnin hefur lífið okkar undirlagt Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð Segðu mér það muni lægja einhvern dag
Og ég neyðist til að segja sem var áður sagt í huga mínum mörg ótöluð orð Segðu mér, að leiðir okkar skiljist hér Segðu mér (það muni lægja einhvern dag)
Segðu mér að allt sem færði okkur saman sé nú gleymt að þúsund nætur hafi gefið ekki neitt Því alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð Segðu mér það muni lægja einhvern dag