Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn, rennur sól á bak við Arnarfell. Hér á reiki er margur óhreinn andinn, úr því fer að skyggja á jökulsvell. Drottinn leiði drösulinn minn, drjúgur verður síðasti áfanginn.
Þei, þei, þei, þei. Þaut í holti tófa, þurran vill hún blóði væta góm, eða líka einhver var að hóa undarlega digrum karlaróm. Útilegumenn í Ódáðahraun eru kannski að smala fé á laun.
Ríðum, ríðum rekum yfir sandinn, rökkrið er að síga á Herðubreið. Álfadrottning er að beisla gandinn, ekki er gott að verða á hennar leið. Vænsta klárinn vildi ég gefa til að vera kominn ofan í Kiðagil.