Krummi svaf í klettagjá, kaldri vetrarnóttu á, ::verður margt að meini:: Fyrr en dagur fagur rann, freðið nefið dregur hann ::undan stórum steini.::
Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor ::svengd er metti mína.:: Ef að húsum heim ég fer heimafrakkur bannar mér ::seppi´ úr sorp að tína.::
Öll er þakin ísi jörð, ekki séð á holtabörð ::fleygir fuglar geta.:: En þó leiti út um mó, auða hvergi lítur tó; ::hvað á hrafn að éta.::
Á sér krummi ýfði stél, einnig brýndi gogginn vel, ::flaug úr fjallagjótum:: Lítur yfir byggð og bú á bænum fyrr en vakna hjú, ::veifar vængjum skjótum.::
Sálaður á síðu lá sauður feitur garði hjá, ::fyrrum frár á velli.:: Krunk, krunk, nafnar, komið hér, krunk, krunk, því oss búin er ::krás á köldu svelli.::