Ef ég aðeins gæti sagt Að það er sem í hjarta brennur, ef ég ætti svar Allt mitt líf er skipulagt Og það framhjá mér rennur, horfið allt sem var Ef ég gæti séð, hvað svo bíður mín
Þú ert sú minning, sem lýsir myrkur hugans Ég man þig oft um nætur, nóttin er svo dimm Þú ert sú minning
Oft ég hef mig að því spurt Að það er sem í mig togar, horfi í sólarátt Lífið bara hreif mig burt Hjartað slær og sál mín logar, samt ég veit svo fátt
Þú ert sú minning, sem lýsir myrkur hugans Ég man þig oft um nætur, nóttin er svo dimm
Ef aðeins ég vissi hvað verður án þín Ég man þessa nótt sem var mín og þín, hvað bíður mín?
Þú ert sú minning, sem lýsir myrkur hugans Ég man þig oft um nætur, nóttin er svo dimm
Þú ert sú minning, sem lýsir myrkur hugans Ég sé þig oft um nætur, svo margt sem minnir á… Þú ert nóttin