Er völlur grær og vetur flýr og vermir sólin grund Kem ég heim og hitti þig verð hjá þér alla stund Við byggjum saman bæ í sveit sem blasir móti sól Þar ungu lífi landið mitt mun ljá og veita skjól Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, já, ég er kominn heim. Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim því ég er kominn heim.